|
|
13.11.2007 22:17:37 / tinns
... www.123.is/tinns Allir að kíkja! 
»
23.10.2007 21:12:15 / tinns
Mikið rosalega er ég búin að vera löt að blogga undanfarna mánuði... Fólk hlýtur að fara að hætta að kíkja á síðuna mína. Ég hef ákveðið að hvíla þessa síðu hérna á central.is því að á köflum er það bara happa glappa hvort ég kemst inn eða ekki og svo eru færslur oft að hverfa þegar ég ýti á staðfesta. Ég er búin að fá mér áskrift að 123.is og ætla að gefa því séns næsta árið að minnsta kosti. Það er líka skemmtilegra því það er hægt að hafa albúm þar og birta myndir í færslunum Ég er ekki búin að gera nýju síðuna alveg tilbúna, en næsta blogg kemur að minnsta kosti þangað inn og svo dytta ég bara að þessu smám saman Endilega kíkið á www.123.is/tinns Kær kveðja, Tinna
»
04.10.2007 16:57:57 / tinns
»
29.09.2007 19:57:35 / tinns
Stafgöngudagurinn var í dag, hann var haldinn af ÍSÍ og Beinvernd og var boðið upp á stafgöngukynningu á mörgum stöðum á landinu. Ég byrjaði daginn kl.11 á Fáskrúðsfirði þar sem 10 galvaskar konur og karlar mættu og prófuðu. Síðan var það Reyðarfjörður kl.14 þar sem tæplega 20 manns mættu. Ég var reyndar ekki með þetta á Reyðarfirði, það var önnur sem sá um þetta þar en ég var til aðstoðar. Þetta fer að sjálfsögðu upp í tímana sem ég þarf að safna mér til að fá leiðbeinandaréttindin þegar seinni hluti námskeiðsins veðrur í nóvember. Familían er komin heim frá Mallorca, vel heppnuð ferð þar -gott að fá þau heim! Siggi er búinn á ALCOA námskeiðinu og er nú byrjaður á vöktum, er á næturvöktum núna um helgina þannig að mín er bara ein í kotinu að horfa á Spaugstofuna sem mér finnst vera orðin dáldið skrýtin þegar Randver er ekki með og allt í einu fullt af aukaleikurum! Asnalegt... Góða helgi, Tinna
»
19.09.2007 17:54:59 / tinns
»
10.08.2007 14:02:02 / tinns
Ég er ekki beint búin að vera virk
á blogginu en það stendur örugglega til bóta... Það gerist
alltaf svona þegar líður á sumarið Hérna eru úrslit í
síðustu skoðanakönnun sem var orðin
eldævagömul
Eins og allir vita þá komst Eiki ekki
áfram í keppninni, austur og vestur blokkin og allt þetta, nennum
nú ekki að ræða það núna... EN ÞAÐ ER KOMIN NÝ KÖNNUN

»
03.08.2007 01:22:47 / tinns
Ég var klukkuð af henni Jóhönnu
Hauks og þá þýðir að sjálfsögðu ekkert annað en að taka
þeirri áskorun Mér skilst að þá eigi maður að kasta fram 8
staðreyndum um sjálfan sig!
- Ég dýrka Stefán Hilmarsson og hef gert
frá því að ég var ca. 6 ára!
- Ég hef ekkert verið í fótboltanum í
sumar -sakna þess talsvert og þá sérstaklega
félagsskaparins
- Ég hef eiginlega alltaf verið með stutt
hár fyrir utan ca.3-4 ár þegar ég var "-tán"
- Ég er loksins búin í skóla (þangað til
næst) og er orðin iðjuþjálfi með B.Sc.!
- Ég elska sumar og
sól
- Ég hef farið í kafbát (sem kafaði út á
sjó)
- Ég var að leysa af sem sölumaður hjá
Vífilfelli í sumar -síðasti dagurinn á morgun!
- Ég er orðin voða þreytt og ætla að drífa
mig í að bursta tennur og skríða uppí

Spurning hverjir fá klukkið frá mér...
hmmmmm....... Ég ætla að klukka: STÍNU DALLASMÆR, SIGGA MINN,
SIGRÚNU EVU, GUFFU, RAKEL SIF, ÓLU MAJU, LENU HULD OG HÖRPU
HRÖNN
Bið að heilsa ykkur öllum
og njótið þess að vera til elskurnar,
Tinna í
Tungu
»
23.07.2007 14:03:49 / tinns
Já nú er franska
vikan byrjuð, þetta er eiginlega heil vika því að ég býst
við því að flestir bæjarbúar í franska bænum Fáskrúðsfirði noti
vikuna til að hressa uppá umhverfið sitt, skreyta og skemmta sér
Ég er farin að hlakka dáldið mikið til enda eru þessir dagar
ekki nema einu sinni á ári -maður er eins og barn að bíða eftir
jólunum! 
Allabaddarí fransí
biskví,
Tinna
»
12.07.2007 14:56:10 / tinns
Ég átti afmæli í fyrradag, ég átti afmæli í fyrradag, ég átti
afmæli hún ééég, ÉG átti afmæli þá! Klappi klappi klapp....  Mig
langar líka að geta þess að Júlli afi heitinn hefði átt afmæli í
dag!
»
03.07.2007 17:30:06 / tinns
Það er allt að gerast þessa dagana. Það er búið að vera mikið að
gera í vinnunni og gaman líka, enda hittir maður helling af fólki á
hverjum degi og oft fólk sem ég er ekki búin að sjá ógeðslega lengi
 Ég er búin að vera tvær vikur með Árnýju sem ég er að leysa af
en nú er ballið byrjað og ég verð að bjarga mér amk út þennan mánuð
-þetta hlýtur allt að reddast  Það var brunað suður á ættarmót í
Árnesi sem er rétt hjá Flúðum, það var ágætt, gaman að hitta fólk
sem maður sér sjaldan og svona. Þetta var semsagt í föðurættinni,
niðjar Þórlinds Jóhannssonar og Guðlaugar Sigríðar Magnúsdóttur,
gaman að segja frá því!  Við fengum íbúðina á Reyðarfirði afhenta
í gær, það er spurning hvenær við höfum tíma til að flytja inn.
Ætli við hrúgum ekki bara draslinu inn og verðum svo næsta árið að
ganga frá... Þetta hlýtur að hafast á endanum! Bið að heilsa,
Tinna.
»
26.06.2007 20:26:22 / tinns
Það er talsvert langur tími liðinn
frá síðasta bloggi hjá mér! Ástæðan fyrir því er sú að ég hef
einfaldlega haft svakalega mikið að gera, sem er bara gott
mál Nema að þegar það er þannig, þá líður sumarið
yfirleitt alltof hratt! Ég er semsagt flutt austur en
búslóðin er samt dreifð um austurland í kerru og þremur
bílskúrum. Við erum að bíða eftir íbúðinni en vonandi fáum
við hana strax eftir næstu helgi svo að mútturnar losni við
okkur Það er líka skemmtilegra þegar maður finnur dótið
sitt þegar mann vantar það! 
Ég er byrjuð á fullu í sumarstarfinu sem
er sölustarf hjá Vífilfelli. Þá þeytist ég um allt austurland frá
Djúpavogi allt til Borgarfjarðar Eystri og heimsæki sölustaði! Sú
sem ég er að fara að leysa af var með mér í síðustu viku og verður
með mér út þessa viku og svo tek ég við, þá er eins gott að standa
sig svo það verði ekki allir brjálaðir! Síðustu viku var ég að
vinna allt uppí 12 tíma á dag en vonandi verður það ekki þannig í
allt sumar, en það er þó kostur að ég verð að mestu leyti í fríi um
helgar.
Annars er ég bara hress og minni ykkur
öll á að fara varlega í umferðinni! 
Kveðja, Tinna.
»
12.06.2007 17:56:33 / tinns
Þetta er síðasta bloggið mitt úr Vestursíðunni góðu. Það
er ótrúlega skrýtið að standa hérna með tölvuna í gluggakistunni og
það er ekkert hérna inni nema smá dót sem á eftir að henda út í
bíl. Fyrsta íbúðin mín orðin tóm, á bara eftir að þrífa hana! Siggi
fór áðan af stað austur á tengdójeppa og með stóra yfirbyggða kerru
með nánast allri búslóðinni, ótrúlegt hvað hefur komist inn í hana!
Ég reikna með því að fara austur á morgun ef ég næ að þrífa allt
saman og græja leigusamninginn og gera alla þessa litlu hluti sem
taka ótrúlegan tíma... 
Ég verð nú bara að viðurkenna að það eru blendnar
tilfinningar sem koma fram við þessi tímamót Pakka öllu
saman og flytja austur og nú hef ég lítið sem ekkert að sækja
lengur til Akureyrar. Það er sól og blíða úti og ég hugsa eiginlega
bara hvað ég sé að pæla að vera að flytja því maður hefur það svo
gott hérna! Það væri eiginlega gáfulegra að flytja um miðjan vetur
því þá væri ég mjög fegin að losna við fannfergið En svona
er þetta, fólk er alltaf að flytja og breyta til í lífi og starfi
og það tekur alltaf eitthvað annað við og spennandi tímar
framundan! 
Sjáumst, Tinna.
»
10.06.2007 12:46:18 / tinns
Daman bara formlega
komin með B.Sc. í iðjuþjálfunarfræðum!
Næst á dagskrá er bara að
sækja um löggildingu og þá verð ég Iðjuþjálfi!

Ótrúlegt að stóri dagurinn
sé liðinn, það er eitthvað svo stutt síðan ég byrjaði í H.A.
Naut dagsins með fjölskyldunni þar sem við grilluðum hrefnukjöt,
hreindýr og lamb og höfðum það rosalega gott!

Farin að
pakka....
Kveðja,
Tinns
»
07.06.2007 14:24:54 / tinns
FUERTEVENTURA
-var að gera góða
hluti!
Rosalega vel heppnuð ferð í alla
staði J
Ég slappaði heldur betur af, naut góðra veitinga af ýmsu tagi, fór
í vatnsrennibrautagarð, dýragarð, kafbátaferð, verslunarferð, á
ströndina, í sólbað, prófaði bogfimi og skotfimi og skemmti mér
konunglega J
Getur maður beðið um meira?
Allavega, ég er komin heim aftur og nú
tekur við að pakka, pakka, pakka, þrífa og flytja! Reyndar ætla ég
að útskrifast í millitíðinni, nánar tiltekið á laugardaginn en það
er “aukaatriði” –eða þannig
Við
lentum í fyrrakvöld og við Siggi gistum hjá Aldísi og Jóa –Takk
fyrir það J
Svo áður en við brunuðum norður í gær þvældumst við aðeins í bænum
og kíktum á nýfæddan son Hjördísar og Hermanns –þvílíka
dúllukrúttið J
Algjör prins! J
Jæja,
það er best að hefjast handa svo maður geti flutt fljótlega! Við
erum búin að fá leigjanda í íbúðina okkar og ætlum að reyna að
afhenda í næstu viku og svo erum við komin með íbúð á Reyðarfirði.
Svo bíður eftir mér vinna fyrir austan hjá Vífilfelli sem ég verð í
þar til ég byrja í Grunnskólanum á
Reyðarfirði!
Bið að
heilsa,
Tinna.
P.S.
EF EINHVER FER UM AKUREYRI Á LEIÐ SINNI AUSTUR OG ER MEÐ PLÁSS Í
SKOTTINU –ÞÁ MÁ SÁ HINN SAMI HRINGJA Í MIG EF HANN VILL VERA
HRIKALEGA GÓÐUR VIÐ MIG OG TAKA KASSA AUSTUR
J
»
19.05.2007 22:27:56 / tinns
Við héldum kynnningu á lokaverkefninu í gær og það gekk
rosalega vel hjá öllum hópum og við stóðum okkur vel! Þegar það
var búið skelltum við okkur á Bjarg í pottinn með kampavín og
jarðarber -gæti ekki verið betra! Svo fórum við heim til mín og
fengum grillþjónustu heim frá Litlu kaffistofunni -mæli algjörlega
með því!!!
Það kom kona hingað og grillaði fyrir okkur
kjúklingabringur og lambakjöt, svo var alls konar
meðlæti; grillaðar kartöflur, kartöflusalat, ferskt salat,
alls konar sósur, brauð og allar græjur. Hún kom líka með diska og
hnífapör. Við borðuðum eins og við gátum og svo tókum við bara
saman og konan fór með leirtauið með sér skítugt í fötu! Við
þurftum semsagt ekki að pæla í neinu nema glösum og drykkjum,
SNILLD!!! Við skemmtum okkur síðan konunglega í partýinu fram á
nótt enda allir í stuði eftir að hafa klárað námið með glæsilegum
fyrirlestrum í gær! 
Það er gaman að vera til á svona dögum

»
Síður: 1 2 3 ... 19
|
Kynning �?�?�?�??�?�??�?¡ lokaverkefninu -s�?�?�?�
Fyrir 1036 dögum
|